Ef engir tímar birtast vinsamlegast hafið samband í síma 595-9500 eða með tölvupósti á postur@huso.is.
Þeir dagar sem eru með lausa tíma birtast sem hvítir á dagatalinu – hægt er að sjá lausar tímasetningar í næsta skrefi.
- Rakavandamál, mygla, fúi
- Loftgæði innanhúss, loftun, loftskipti, hljóðbærni
- Byggingarefni
- Votrými
- Endurbætur
- Viðhald á ytra og innra byrði
- Tjón á fasteignum
- Orkunýtni
- Fráveitulagnir (t.d. dren og skólp)
- Brunavarnir, flóttaleiðir, reykskynjarar
- Meindýr (t.d. silfurskottur, húsamaur, parketlús)
- … og margt fleira!
Sum verk þarfnast mun nákvæmari skoðunar og rannsóknar svo hægt sé að svara með fullnægjandi hætti. Ráðgjafar Húseigendafélagsins geta ekki tekið að sér stærri verk, svo sem:
- Endurskoðun á stórum framkvæmdum í fjöleignarhúsum
- Skipulagning á stórum framkvæmdum
- Mál sem nauðsynlegt er að framkvæma skoðun á staðnum
- Endurhönnun og ráðgjöf sem krefst löggildingar
- Byggingarstjórn
- Kostnaðarmöt
Við ráðleggjum því félagsmönnum okkar að hafa samband við sérhæfða skoðunarmenn sem geta framkvæmd skoðun á staðnum og veitt nákvæmt mat á aðstæðum – sér í lagi ef um er að ræða mikla fjárhagslega hagsmuni.
Framkvæmdaráðgjafinn getur ekki svarað lagalegum álitaefnum og mun vísa slíkum erindum á lögfræðisvið Húseigendafélagsins.
Hvorki Húseigendafélagið né framkvæmdaráðgjafi bera ábyrgð á þeim upplýsingum eða ráðleggingum sem fram koma í framkvæmdaráðgjöf.