Panta tíma í framkvæmdaráðgjöf

Ef engir tímar birtast vinsamlegast hafið samband í síma 595-9500 eða með tölvupósti á postur@huso.is.

Þeir dagar sem eru með lausa tíma birtast sem hvítir á dagatalinu – hægt er að sjá lausar tímasetningar í næsta skrefi.

  • Rakavandamál, mygla, fúi
  • Loftgæði innanhúss, loftun, loftskipti, hljóðbærni
  • Byggingarefni
  • Votrými
  • Endurbætur
  • Viðhald á ytra og innra byrði
  • Tjón á fasteignum
  • Orkunýtni
  • Fráveitulagnir (t.d. dren og skólp)
  • Brunavarnir, flóttaleiðir, reykskynjarar
  • Meindýr (t.d. silfurskottur, húsamaur, parketlús)
  • … og margt fleira!

Sum verk þarfnast mun nákvæmari skoðunar og rannsóknar svo hægt sé að svara með fullnægjandi hætti. Ráðgjafar Húseigendafélagsins geta ekki tekið að sér stærri verk, svo sem:

  • Endurskoðun á stórum framkvæmdum í fjöleignarhúsum
  • Skipulagning á stórum framkvæmdum
  • Mál sem nauðsynlegt er að framkvæma skoðun á staðnum
  • Endurhönnun og ráðgjöf sem krefst löggildingar
  • Byggingarstjórn
  • Kostnaðarmöt

Við ráðleggjum því félagsmönnum okkar að hafa samband við sérhæfða skoðunarmenn sem geta framkvæmd skoðun á staðnum og veitt nákvæmt mat á aðstæðum – sér í lagi ef um er að ræða mikla fjárhagslega hagsmuni.

Framkvæmdaráðgjafinn getur ekki svarað lagalegum álitaefnum og mun vísa slíkum erindum á lögfræðisvið Húseigendafélagsins.

Hvorki Húseigendafélagið né framkvæmdaráðgjafi bera ábyrgð á þeim upplýsingum eða ráðleggingum sem fram koma í framkvæmdaráðgjöf.