Kynlíf og klossagangur í fjöleignarhúsum

Nágranni frá helvíti

Við könnumst öll við svarta sauðinn í húsfélaginu. Nágrannann sem er ekki samvinnuþýður, veldur fólki ama og almennum óþægindum eða er kannski bara leiðinlegur. En hvað þarf að koma til svo hægt verði að neyða slíka sauði til þess að selja eignir sínar og flytja úr félagsskap skemmtilega fólksins?

Stutta svarið er að það er ekki talið nægjanlegt að vera leiðinlegur, heldur þarf meira að koma til.

Heimild til þess að neyða fólk til að selja eign sína er að finna í 55. gr. laga um fjöleignarhús. En hvað þarf að koma til svo hægt sé að beita slíkri heimild? Hér verður farið yfir dæmi sem hafa ratað á borð Húseigendafélagsins nýlega.

 

Kynlíf

Algengt er að fólk eigi nóg með að athafna sig í sínu eigin kynlífi, hvað þá þegar nágranninn tekur óbeinan þátt í átökunum. En hvar er línan dregin milli þess samlífs sem almennt verður að viðurkenna sem eðlilega hagnýtingu séreignar sinnar og þeirra tilvika þegar óp og stunur eru orðin svo óbærileg að ekki er líft í nágrannaíbúðum fyrir slíkum látum?

Slíkur ólátagangur fellur að vísu undir jaðartilvik í fjöleignarhúsum. Almennt hefur verið gengið út frá því að ekki sé hægt að setja hömlur á gæðastundir þar sem meðalhófs er gætt. Lög um fjöleignarhús kveða á um að eigendur fasteigna í fjöleignarhúsum skuli sýna tillitssemi og umburðarlyndi gagnvart nágrönnum sínum. Ef síðarnefnda orðið er tekið bókstaflega má jafnvel færa rök fyrir því að nágrannar verði óbeinir þátttakendur í athöfnum hver annars, hvort sem litið er á það huglægt eða hlutlægt

Til samanburðar má nefna þekkt mál sem kom upp hjá Húseigendafélaginu fyrir aldamót og setti í raun Kópavog á kortið sem Amsterdam Norður-Atlantshafsins.

Stóra stunumálið sem DV fjallaði um á sínum tíma er eitt af þessum öfgakenndu jaðartilvikum sem sanna undantekninguna frá meginreglunni. Nágrannar þessarra kynlífsunnenda lýstu látunum á við barnsgrát og spangól í hundi. Ástarleikarnir voru þrír á dag og stóðu yfir í þrjá tíma í senn og hafði þetta gengið svona áfram í sjö mánuði.

Þótt seint verði í lög leiddur ákveðinn kynlífsgluggarammi verður engu að síður að gera þá kröfu að menn gæti meðalhófs í ástarleikjum sínum. Enda ber að hafa í hugaað eins manns gólf er annars manns þak.

 

Klossakonan

Ekki eru öll mál eins sem berast Húseigendafélaginu og sum eru skrautlegri en önnur. Eitt eftirminnilegt mál er mál hinnar frægu klossakonu. Hávaðinn og ónæðið voru af ásetningi gerð til þess að ergja og pirra nágrannafólkið. Konan setti á sig klossa í þeim tilgangi að búa til hávaða sem myndi óma um alla ganga. Nágrannar klossakonunnar höfðu þurft að þola það árum saman að hún þrammaði kirkjugólfin langt fram á nótt.

En klossakonan lét sér ekki nægja að valda ónæði með háværu þrammi, heldur gerði hún sér það einnig að afþreyingu að berja í handrið stigagangsins með tóli og skilja útidyrnar eftir opnar í þeim tilgangi að hleypa óboðnum gestum inn.

Slíkir nágrannar eru sem betur fer sjaldgæfir í húsfélögum, en jafnvel þolinmóðustu nágrannar eiga sín þolmörk.

Þegar kemur að alvarlegum og ítrekuðum brotum er oft erfitt að leggja mat á hvort skilyrði 55. gr. séu uppfyllt. Klossakonan fékk að þramma sín kirkjugólf árum saman áður en eitthvað var að gert.

 

Lagaúrræði

Hvað varðar þau úrræði sem fjöleignarhúsalögin hafa að geyma er í 55. gr. laganna kveðið á um úrræði gagnvart grófum eða ítrekuðum brotum eiganda eða íbúa.

Almennt er gengið út frá því að senda þurfi hinum brotlega skriflega aðvörun. Ef hinn brotlegi lætur sér ekki segjast þrátt fyrir skriflega aðvörun getur húsfélagið lagt bann við búsetu og dvöl hans í húsinu, gert honum að flytja og krafist þess að hann selji íbúð sína.

Í kjölfar kröfu húsfélagsins þarf yfirleitt að fylgja henni eftir með lögsókn og/eða nauðungarsölu. Mikilvægt er að gæta að öllum formreglur því annars verður úrræðinu ekki beitt.

Eftir því sem undirritaður best veit hefur ekki reynt á svo íþyngjandi úrræði vegna ástarleika nágranna.

 

Neyðarrúrræði – sönnun – réttar aðferðir

Við beitingu slíkra úrræða verður að hafa hugfast að um lokaúrræði er að ræða, sem ekki verður gripið til nema allt um þrýtur. Við mat á því hvort skilyrði fyrir beitingu slíkra úrræða séu uppfyllt verður að taka mið af öllum þeim hagsmunum sem liggja undir í hverju máli fyrir sig. Þá ber jafnframt að hafa í huga að eignarrétturinn nýtur verndar samkvæmt stjórnarskrá lýðveldisins og því er um mjög íþyngjandi úrræði að ræða.

Dómstólar hafa gert ríkar kröfur til sönnunar á slíkum brotum. Helstu sönnunargögn á fyrstu stigum máls geta meðal annars verið lögregluskýrslur, vottorð, matsgerðir, ljósmyndir, fundargerðir, bréf o.fl

 

Niðurlag

Þá er ljóst að þau álitaefni og nágrannaerjur sem upp geta komið í fjöleignarhúsum eru af ýmsum toga. Þó ber að hafa í huga þá meginreglu laga um fjöleignarhús að eigendur skuli sýna hver öðrum tillitssemi og umburðarlyndi.

Þótt stirt geti verið á milli nágranna er ekki þar með sagt að skilyrði 55. gr. laganna séu uppfyllt. Eins og undirritaður hefur áður nefnt er nefnilega heimilt að vera leiðinlegur. Hins vegar verður að hafa í huga að réttinum til að njóta eigin heimilis fylgir jafnframt sú skylda að virða rétt annarra til hins sama.

Því eins og áður hefur komið fram: Eins manns gólf er annars manns þak.

Fleiri fréttir

Enn eitt frumvarpið til breytinga á húsaleigulögum

Félags- og húsnæðismálaráðherra hefur lagt fram enn eitt frumvarpið til breytinga á húsaleigulögum. Síðast liðin fjögur ár hafa verið gerðar fimm breytingar á húsaleigulögum og þar af hefur ákvæðum um

Húseigendafélagið flytur í Þarabakka 3

Skrifstofa Húseigendafélagsins verður lokuð fimmtudaginn 24. september nk. vegna flutninga í nýtt húsnæði. Við biðjumst velvirðingar á þeirri röskun sem þetta kann að valda.