Framkvæmda- og viðhaldsráðgjöf fyrir félagsmenn

Istock.com/demaerre

Hefur komið upp leki, mygla  eða eru viðhaldsframkvæmdir fram undan? Margir húseigendur standa frammi fyrir spurningum í tengslum við galla á fasteignum sínum, viðhald og framkvæmdir. Húseigendafélagið býður nú félagsmönnum sínum framkvæmda- og viðhaldsráðgjöf, til viðbótar við lögfræðiráðgjöf, húsfundaþjónustu og fræðslu sem félagið hefur veitt félagsmönnum.

Þegar vandamál koma upp í húsnæði getur verið erfitt að átta sig á orsökunum, hversu brýnt sé að bregðast við og hvert eigi að leita. Í fjöleignarhúsum vakna oft spurningar um ábyrgð og kostnaðarskiptingu. Hjá félaginu geta félagsmenn nú fengið aðstoð við bæði tæknilegar og lagalegar spurningar á einum stað.

Ertu að velta fyrir þér mögulegum orsökum leka eða hvaða viðgerðir komi til greina? Þá hentar framkvæmdaráðgjöf félagsins. Snýr málið að ábyrgð, kostnaðarskiptingu eða ágreiningi milli eigenda? Þá getur verið rétt að bóka lögfræðiráðgjöf.

Hvað getur ráðgjafinn hjálpað með?

Ráðgjafi félagsins er húsasmíðameistari með reynslu af viðhaldi, framkvæmdum og ástandsmati fasteigna. Hann getur m.a. aðstoðað við:

  • að meta líklegar orsakir raka, leka, myglu og annarra skemmda,
  • að forgangsraða viðhaldi,
  • að ráðleggja um endurbætur,
  • meta viðhaldsþarfir á ytra og innra byrði.
  • að átta sig á til hvers konar fagmanns best er að leita og hvað á að spyrja hann um.

Óháð ráðgjöf

Ráðgjafinn tekur ekki að sér framkvæmdir, selur ekki vörur og fær ekki þóknun fyrir að vísa viðskiptum til ákveðinna verktaka. Ráðgjöfin er því óháð og miðar eingöngu að hagsmunum félagsmanna. Markmiðið er að hjálpa félagsmönnum að taka upplýstar ákvarðanir og forðast óþarfa kostnað.

„Við sjáum hér tækifæri til að bjóða félagsmönnum þjónustu af þessu tagi. Framkvæmda- og viðhaldsráðgjöfin tengist lögfræðiaðstoðinni, sem stendur félagsmönnum til boða. Oft berast félaginu fyrirspurnir um framkvæmdir og viðhald en einnig fara tæknilegar og lagalegar fyrirspurnir oft saman. Þjónustan fellur vel að tilgangi Húseigendafélagsins, sem er að gæta hagsmuna húseigenda og styðja þá í ákvörðunum um eignir sínar. Sambærileg félög á Norðurlöndum hafa boðið upp á slíka ráðgjöf með góðum árangri og við viljum að íslenskir húseigendur njóti sömu þjónustu,“ segir Ívar Halldórsson, rekstrarstjóri Húseigendafélagsins.

Hvað fellur utan ráðgjafarinnar?

Ráðgjöfin byggir á lýsingu félagsmanns og þeim myndum og gögnum sem hann leggur fram. Hún er hugsuð sem fyrsta aðstoð við að átta sig á vandanum og meta næstu skref.

Ráðgjöfin kemur ekki í stað vettvangsskoðunar, hönnunar, eftirlits með framkvæmdum eða matsgerðar. Ef frekari skoðunar er þörf getur ráðgjafinn leiðbeint um til hvers konar sérfræðings sé rétt að leita.

Að jafnaði fer viðtalið fram hjá félaginu í Þarabakka 3.

Nánar um framkvæmdaráðgjöfina

Verð og bókun

Viðtal er 30 mínútur og kostar 15.000 kr. Þjónustan er eingöngu í boði fyrir félagsmenn Húseigendafélagsins.

  1. Skráðu þig inn á huso.is með notendanafni og lykilorði. Ef þú manst ekki lykilorðið eða lendir í vandræðum með innskráningu geturðu haft samband við félagið í síma eða með tölvupósti.
  2. Bókaðu tíma á bókunarsíðu framkvæmdaráðgjafar.
  3. Lýstu vandanum stuttlega og láttu myndir og önnur gögn fylgja ef þau eru til.
  4. Mættu í viðtalið í Þarabakka 3 á bókuðum tíma, nema samið hafi verið um ráðgjöf í síma eða á fjarfundi.

Bóka tíma í framkvæmdaráðgjöf

Ef þú ert í vafa um næstu skref varðandi viðhald eða ástand fasteignar getur framkvæmdaráðgjöfin verið góður staður til að byrja.

Ekki félagi? Skráðu þig í Húseigendafélagið

Fleiri fréttir

Kynlíf og klossagangur í fjöleignarhúsum

Nágranni frá helvíti Við könnumst öll við svarta sauðinn í húsfélaginu. Nágrannann sem er ekki samvinnuþýður, veldur fólki ama og almennum óþægindum eða er kannski bara leiðinlegur. En hvað þarf

Enn eitt frumvarpið til breytinga á húsaleigulögum

Félags- og húsnæðismálaráðherra hefur lagt fram enn eitt frumvarpið til breytinga á húsaleigulögum. Síðast liðin fjögur ár hafa verið gerðar fimm breytingar á húsaleigulögum og þar af hefur ákvæðum um