Fræðslufundur: Breytingar á húsaleigulögum

iStock.com/Niphon Khiawprommas

Húseigendafélagið býður til fræðslufundar þar sem farið verður yfir nýlegar breytingar á húsaleigulögum. Fjallað verður um þær umfangsmiklu breytingar sem gerðar hafa verið á lögunum á síðustu árum, auk fyrirhugaðs lagafrumvarps um svokallaða leigubremsu.

Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 24. nóvember kl. 17:00–18:15 í fundarsal nýs skrifstofuhúsnæðis Húseigendafélagsins að Þarabakka 3, 3. hæð. Gengið er inn um suðurinngang hússins. Athygli er vakin á því að engin lyfta er í húsnæðinu.

Hildur Ýr Viðarsdóttir, formaður Húseigendafélagsins, flytur erindið.

Þátttaka er án endurgjalds, en nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram þar sem sætafjöldi er takmarkaður. Hægt er að skrá þátttöku hér.

Að erindi loknu gefst félagsmönnum kostur á að bera upp spurningar og taka þátt í umræðum.

Staðsetning Húseigendafélagsins - Þarabakki 3

Suðurinngangur í Þarabakka 3

Fleiri fréttir

Framkvæmda- og viðhaldsráðgjöf fyrir félagsmenn

Hefur komið upp leki, mygla  eða eru viðhaldsframkvæmdir fram undan? Margir húseigendur standa frammi fyrir spurningum í tengslum við galla á fasteignum sínum, viðhald og framkvæmdir. Húseigendafélagið býður nú félagsmönnum

Kynlíf og klossagangur í fjöleignarhúsum

Nágranni frá helvíti Við könnumst öll við svarta sauðinn í húsfélaginu. Nágrannann sem er ekki samvinnuþýður, veldur fólki ama og almennum óþægindum eða er kannski bara leiðinlegur. En hvað þarf