Jónína Þórdís Karlsdóttir, lögmaður Húseigendafélagsins, var gestur Ásdísar Olsen á Rauða borðinu á Samstöðinni 26. nóvember. Í þættinum ræddu þær nágrannaerjur og þau vandamál sem koma oft upp í fjölbýlishúsum.
Jónína segir frá ýmsum aðstæðum sem geta skapast í nábýli og rata inn á borð félagsins. Þar má nefna hávaða, söfnunaráráttu, dýrahald og erfið samskipti milli íbúa. Hún ræðir líka hvað það getur tekið á að koma að útburði fólks sem ræður ekki við að borga leiguna.
Í viðtalinu gefur Jónína einnig góð ráð fyrir þá sem eru að kaupa húsnæði og segir frá þeirri þjónustu sem Húseigendafélagið býður félagsmönnum sínum.
Viðtalið er um 48 mínútur og má horfa á það hér: Rauða borðið 26. nóv. – Nágrannaerjur

Lendi félagsmenn í ágreiningi í fjöleignarhúsi eða hafi spurningar um réttindi sín og skyldur geta þeir haft samband við skrifstofu Húseigendafélagsins.


